Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
Episodes
300
01 September 2026
Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu
Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti.Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.
01 September 2026
Harkið - Hiti í 3. deildinni
Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
01 September 2026
Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.
29 August 2026
Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða
Elvar Geir og Benedikt Bóas eru í hljóðveri í þætti dagsins og með þeim er Valur Páll íþróttafréttamaður á Sýn.Hitað verður sérstaklega upp fyrir komandi stórleik í Bestu deildinni, viðureign KR og Víkings á þriðjudag. Aðrir leikir í Bestu deildinni, Lengjudeildin, Infantino og enski boltinn koma svo auðvitað líka við sögu.
26 August 2026
38 umferðir - Chelsea kom, Joao og sigraði
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...
25 August 2026
Enski boltinn - Martraðarbyrjun Man Utd og hver stoppar Arsenal?
Enska úrvalsdeildin hófst um helgina með látum en fyrstu umferðinni lauk í gærkvöldi.Manchester United og Tottenham fengu martraðarbyrjun, Arsenal lita illviðráðanlega út og það var baulað á Alexander Isak í endurkomunni á St James' Park. Er Chelsea kannski liðið sem mun veita Arsenal mesta samkeppni?Guðmundur Aðalsteinn fékk Eið Orra Ragnarsson og Þorlák Breka Baxter, leikmenn Keflavíkur, í...
25 August 2026
Uppbótartíminn - Þú varst ekkert að spá þessu
Síðustu leikir í dag Bestu deild kvenna hafa heldur betur verið óútreiknanlegir margir.Tvö efstu liðin töpuðu og tvö neðstu liðin unnu bæði. Hvað er eiginlega að gerast í þessari deild?Núna eru bara tvær umferðir eftir fram að skiptingu og verður mjög áhugavert að sjá hvernig deildin þróast.Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli og Snæbjörtu og fór yfir síðustu leiki ásamt því að ræða...
25 August 2026
Harkið - Haukar verða alltaf bestir
Harkið fór yfir stærstu atvikin í nítjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:10:00 Uppgjör 2.deild:41:36 Spá:01:18Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
24 August 2026
Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft
Innkastið eftir 20. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór.Kaflaskipt fjör í Kópavogi, markaflóð í heimsókn til Akureyrar, Vatnhamar kvaddur, Jón Þór lét allt flakka í viðtali, Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira.
22 August 2026
Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi í þjálfaramálum og kraftur í Keflavík
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 22. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Rætt er um stóru fréttirnar í Bestu deildinni. Eiður Smári er tekinn við KA og Stjarnan rak aftur þjálfarann sinn.Jónas Guðni Sævarsson yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík er á línunni. Næsta umferð í Bestu er skoðuð og Manchester United tapaði gegn Hull í ensku úrvalsdeildinni.